your actual page is starting */ body { background-color: #cc99cc; } .header { background-color: #ff9900; border-bottom: 2px solid white; } h1 { font-family: "Trebuchet MS", Helvetica, sans-serif; font-size: 25px; color: white; padding-left: 57px; padding-top: 15px; padding-bottom: 10px; } .leftedge { background-color: #996699; } h3 { font-family: "Tahoma", sans-serif; font-size: 15px; color: white; padding-top: 20px; } .date { padding-left: 20px; padding-bottom: 2px; border-bottom: 2px solid #996699; } blockquote, p { font-family: "Tahoma", sans-serif; font-size: 12px; color: white; line-height: 18px; } .postinfo { font-size: 10px; font-style: italic; padding-bottom: 7px; padding-left: 15px; } .rightbar { background-color: #996699; border-left: 2px solid white; border-bottom: 2px solid white; padding-left: 15px; padding-right: 5px; padding-bottom: 30px; padding-top: 20px; } .blogarchive { color: #ff9900; } a:link { color: white; } a:visited { color: #ffcc99; } a:hover { color: #ff9900; } /* end of the style definition */
     

miðvikudagur, janúar 28, 2004

 
Ég á ekki að fá að tengjast þráðlausa netinu í skólanum :( ég hef aldrei komist inná það hvar sem ég hef verið á háskólasvæðinu... þó ég sé búin að skrá mig hjá rhi.is. Loksins fór eg niðrí RHÍ í morgun að leita mér aðstoðar. Gaurinn sagði mér að fara fram á gang og kveikja á tölvunni og kalla á sig. Svo þegar ég kveikti á tölvunni og akrabadabra í fyrsta skiptið virkaði netið!! Hann sagði að það ætti að virka alveg jafn vel annars staðar... ég fór í tíma uppí Háskólabíó og auðvitað virkaði það ekki þar aaarrrrgggg!!! Ég ætla í leiðangur á morgun og tékka á því hvort það virki bara í tæknigarði eða hvort það virki einhvers staðar annars staðar líka... ef einhver getur hjálpað mér þá væri það vel þegið...


þriðjudagur, janúar 27, 2004

 
Ef einhver er að velta því fyrir sér hvort ég hafi bara sest að á Kanarý eyjum þá er það því miður ekki sannleikurinn... ég er komin aftur í kuldan og myrkrið. Mætt í skólann og vinnunna og allt orðið venjulegt aftur... En ég verð að segja ykkur frá gærdeginum hjá mér... svona sérstaklega ykkur sem eydduð honum í þynnku ;) Ég byrjaði á því að mæta í sunnudagaskólann í Árbæjarkirkju og hitti þar snillinginn hann Guðna. Eftir klukkutíma af söngli og klappi þá skutlaði ég Nönnu og Tinnu heim, en þær fengu að fljóta með og kíkti í heimsókn til langömmu dóttur minnar. Eftir það fór ég aftur að hitta Kidda, Nönnu og Tinnu og nú í sundi. Svo var ég að keyra heim eftir sundið alveg glorhungruð í einhvern góðan, heimatilbúinn mat og nennti engan veginn að elda bara fyrir mig og litlu músina mína. Þannig að ég kom bara við í Bónus og tók krók til Lindu systur og eldaði oní alla fjölskylduna, ýkt dugleg! Það eina sem skemmdi þennan annars frábæra dag var helv.... handboltaleikurinn. Og ekki orð um það.


laugardagur, desember 27, 2003

 
Ég er búin ad sitja í hálftíma vid tolvuna og skrifa og skrifa og skrifa, svo slokknadi á helv... tolvunni thví ad tíminn var búinn og allt datt út aaaaaarrrrrrrrrgggggggghhhhh!!!!!!!! Ekki sátt. En í stuttu máli thá gledileg jól oll somul ég hef thad rosalega gott hérna á Kanarí í 30 stiga hita. Er búin ad liggja í leti á strondinni, skoda umhverfid, fara í verslunarmidstod, tívoli, vatnsrennibrautagard og ýmislegt fleira skemmtilegt. Sóley hefur thad líka rosalega gott í hitanum, en hún er algjor pempía, vill ekki snerta sandinn, vill ekki koma nálaegt sjónum og helst ekki sundlauginni heldur!!! En thratt fyrir thad skemmtir hún sér vel og henni líst svakalega vel á spanjolana! Alveg á hreinu ad ég kem ekki med hana hingad thegar hún er komin á unglingsaldurinn!!!!!!!!
Hitinn var orugglega yfir 30 stig í dag thar sem vid vorum í vatnsrennibrautagardinum og var thad alveg svakalega fínt. Í gaerkvoldi aetladi hann Viggó ad benda okkur á "fínan kebab stad" af thví ad hann er búinn ad vera hérna lengur en vid og thekkir umhverfid betur... en stadurinn var ekki fínni en thad ad hann var alveg eins og baejarins bestu!!! Ekki gaman eftir langt labb... en vid skelltum okkur á kjot af teini og var thad svakalega gott... fórum svo í hótelgardinn thar sem risapáfagaukar voru ad sýna listir sínar.
Sólarkvedja til allra
(stafsetningin er orugglega hraedileg thar sem eg var ad drifa mig svo mikid...sorry)

 
Olah amigos!
Gledileg jól oll somul!
Ég er nú svo heppin ad vera stodd a Kanari í 30 stiga hita og sól :)
dagur 1 (23.des)
Vid lentum um eftirmiddaginn í grenjandi rigningu!!! Heimamenn sogdu okkur ad thad vaeru u.th.b. 7-10 rigningardagar hér á ári og audvitad matti eg ekki missa af thvi ad fa sma rigningu... en eftir ad vid vorum búin ad koma okkur fyrir tha forum vid í júmbó-center. Thar eru fullt af veitingarstodum og vid ákvádum ad láta undan thrýstingi frá ágengum monnum sem vinna vid thad ad lokka fólk inná matsolustadi og skelltum okkur á kínverskann... hefdum betur átt ad sleppa thví thví thótt maturinn hafi verid ágaetur thá var thjónustan ekki upp á marga fiska, fengum matinn okkar oll a sitthvorum tímanum... en svo fórum vid bara uppá hótel og sofnudum snemma.
dagur 2 (24.des)
Voknudum á adfangadagsmorgni í skýudu vedri en thó heitu. Fórum í verslunarmidstod í grendinni og gátum verslad adeins... Roltudum svo um umhverfid og skodudum okkur um. Ég, Viggó, Ingvi og Sóley skelltum okkur nidra strond og sólin var komin. Um kvoldid, eftir ad vid vorum búin ad opna pakkana sem vid vorum med, fórum vid svo út ad borda á fínan stad sem thurfti ekki menn til thess ad lokka mann inn (nokkud gód medmaeli...) Thar fengum vid mjog godan mat. Eftirá settumst vid nidra bar í grend vid hótelid sem var mjog finn. Thar vard hún litla dúllan mín í fyrsta skiptid ástfangin... og thad ad spaenskum barthjoni... hún naut thess ad stara á hann allt kvoldid. Svo gaf hann henni sleikjó og hún vard svooooo ánaegd!
dagur 3 (25.des)
Á jóladag lágum vid í sólbadi og roltudum um hverfid. Um kvoldid fórum vid svo út ad borda á rosa gódan stad í júmbó center. Eftir thad kíktum vid svo á bar hérna í nágrenninu thar sem 2 klaedskiptingar voru med show og voru medal annars ad syngja jólalog... frekar fyndid, eitthvad sem ég á orugglega ekki eftir ad upplifa aftur á jóladag!
dagur 4 (26.des)
Eyddum nánast ollum deginum á strondinni í frábaeru vedri, 30 stig og glampandi sól. Fórum svo í rosalega skemmtilegt tívolí. Meiriháttar gaman og Sóley skemmti sér rosalega vel vid thad ad horfa á alla hina en thegar hún fékk ad fara í taeki var ekki alveg jafn gaman... vard pínu hraedd greyid. Eftir tívolíid aetladi Viggó svo ad fylgja okkur á "fínt kebab hús" og thegar vid vorum komin á leidarenda misstum vid oll andlitid (nema Viggó audvitad) thví ad thetta fína kebab hús var eins fínt og baejarins besta!!!!!!! Eftir sma thjark var samt bordad á stadnum og var maturinn ekkert slaemur... fórum svo í hótelgardinn eftir thad thar sem risastórir og flottir páfagaukar voru ad sýna listir sýnar, meiriháttar sýning.
dagur 5 (27. des)
Í dag fórum vid svo í vatnsrennibrautagard sem var alveg meiriháttar. Fjoll allt í kringum gardinn og thvi algjort logn. Vedrid var meirihattar og hiti orugglega yfir 30 stigum. Ég fór í allar staerstu rennibrautirnar og skemmti mér vel en hún dóttir mín vildi helst ekkert koma nálaegt vatninu...
Tíminn ad verda búinn skrifa aftur seinna!!



mánudagur, desember 08, 2003

 
Jæja vika síðan ég skrifaði síðast... eigum við ekki bara að segja að ég sé búin að vera svo dugleg að læra að ég hafi ekki haft tíma... jú, jú... ég er allavega virkilega búin að reyna. Lærði eins og brjálæðingur fyrir félagsfræðiprófið og gekk bara ágætlega. Var reyndar ekki sátt við framkvæmdina á prófinu. Þegar ég byrjaði að lesa yfir prófið þá sá ég strax spurningu sem mér fannst ekki nógu ýtarleg og langaði að fá skýringu á. Ég spurði yfirsetukonuna hvort að kennarinn mundi koma að svara spurningum... hún sagðist halda það því þeir gerðu það alltaf... ég hélt bara áfram að svara hinum spurningunum og rakst á aðra sem ég vildi skýringu á líka. Þegar hálftími var eftir af prófinu spurði ég yfirsetukonuna hvort að kennarinn kæmi úr þessu (við vorum fáar eftir í stofunni) og hún sagðist ekki gera ráð fyrir því. Ég sýndi henni spurningarnar og hún sagði mér sitt álit á annari spurningunni og það staðfesti það sem ég hélt... skilaði prófinu og fór út. Fletti upp á þessari spurningu í bókinni og það sem ruglaði mig og það sem ég hefði átt að fá svar við gerði það að verkum að ég gerði vitleysu!! Dúnna lenti í svipaðri stöðu og ég og við vorum auðvitað mjög ósáttar. Hún hringdi niðrá hjúkrunarfræðideild og fékk það svar að yfirsetukonurnar áttu að hringja í kennarann, fá svarið við okkar spurningum hjá honum og koma því svo til skila til okkar.... vandamálið var bara að þær VISSU ÞAÐ EKKI!!! Ástæðan fyrir því að kennarinn kemur ekki í prófin til okkar er sú að þetta er clausus-fag og þessvegna á að gilda strangari reglur um það hvernig prófið fer fram... en bíddu... já einmitt... strangari reglur sem þær sem sjá til þess að prófið fari rétt fram vita ekki hvernig eru... frekar fáránlegt er það ekki?!? En ég veit það þá allavega núna að þær eigi að hringja í kennarann... eins gott að þær hafi þá númerið hjá honum í næsta prófi... sem er hin yndislega lífefnafræði... sem er bara svo skemmtileg að ég nenni ekki að læra... mig langar frekar að þvo gólfin á íbúðinni með eyrnarpinna og loftin með tannbursta!
En allavega þá horfði ég á Survivor áðan... hvað er málið með þessar stelpur, akkurru geta stelpurnar ekki staðið saman og rekið þessa kalla í burtu. En ég held ég sé nú bara farin að halda með Darrah... eða Lil... veitiggi alveg... Svo sá ég fyrsta þáttinn af Joe millioner á laugardagskvöldið... æi ég veit það ekki, lítur nú ekkert út fyrir að vera neitt alltof spennandi, en eins og með alla þessa raunveruleikaþætti á ég örugglega eftir að festast í honum (nema Meet the Parents eða eitthvað álíka, þessi þáttur með lygaprófin, jakkídíjakk) sérstaklega þegar ég hef ekkert annað að gera svona á laugardagskvöldum!
Svo fattaði ég það í dag að ég átti eftir að sækja um vegabréf fyrir Sóleyju, það tekur 10 virka daga (nema maður borgi meira) en það eru 11 virkir dagar í brottför!! Minnir mig á það... ætli mitt sé ekki þarna einhversstaðar og ennþá í gildi...úúúbbbs... hefði nú átt að tékka á því líka!!! Djö... heilinn er ekki alveg að virka sem skyldi...


mánudagur, desember 01, 2003

 
Jæja þá er biðin á enda, búin að horfa á Survivor. Þessi Jon hefur alltaf farið í taugarnar á mér en OMG þvílíkur lúsablesi að ljúga því að amma hans væri dáin... ég vona að hinir eiga eftir að komast að því að hann er að ljúga og reka hann í burtu. Mér finnst skrítið að T hafi verið rekin í burtu, hún er ekki beint ógnandi fyrir hina. Eins og mér finnst hann Burton voðalega sætur þá finnst mér að þau hafi átt að nota tækifærið fyrst hann var ekki með friðhelgina og reka hann í burtu og svo Jon og vera 5 stelpur eftir, mér hefði fundist það flott. En þetta sannaði bara það að konur eru konum verstar!


sunnudagur, nóvember 30, 2003

 
Ég er algjör raunveruleikaþáttaaðdáandi (úúú, flott orð...) og ég sá sýnt úr næsta þætti af Survivor og það er ýkt spennó, get varla beðið eftir mánudeginum... svo er það eitt sem ég hef verið að pæla í... Af hverju var Jen ekki með trúlofunarhringinn sem Andrew gaf henni þegar þau komu í þáttinn sem var sýndur eftir að þau trúlofuðu sig??? Ég er rosalega forvitin og ef einhver getur svalað forvitni minni þá endilega commenta!


laugardagur, nóvember 29, 2003

 
Mér finnst að það eigi að vera bannað með lögum að eyða laugardagskvöldi í það að læra... en svona til að tala um e-ð annað en lærdóm þá tók ég mér pásu í dag til að fara í Bónus. Heppna ég var að setja jógúrt í poka og pokinn rifnaði og jógúrtið splúndraðist í gólfinu og skvettist yfir buxurnar mínar og skóna... ÝKT PIRRUÐ og það tók Bónusafgreiðslustelpuna örugglega korter að redda mér nýjum jógúrtdósum... Ég held þetta hafi verið merki um það að ég bara ætti ekkert að vera að því að taka mér pásur, bara vesen!

Saeunn Svanhvit Viggosdottir




Linkar
Soley Margret
Bjork
Unnur Ylfa
Omar
Bendt




Kvittid fyrir heimsokn ykkar

This page is powered by Blogger. Isn't yours?